Snjóbræðslukerfi

Við útbjuggum kerfismynd í mySCADA sem sýnir báðar snjóbræðslurásirnar. Rekstraraðili getur fylgst með hita og þrýstingi í báðum rásum á sama skjá.

Yfirlitsmyndin sýnir hvernig báðar rásirnar tengjast kistunum fimm.

Um kerfið

Hvor rás hefur sinn varmaskipti, dælu og stýriloka. Lagnamyndin sýnir framrás og bakrás að snjóbræðslukistunum og hvar hiti og þrýstingur eru mæld.

Heitavatnsnotkun er skráð á sérsíðu. Þar má sjá notkun dagsins og heildarnotkun eftir mánuðum og árum.

snjóbræðslurásir
2
snjóbræðslukistur
5

Skoðaðu kerfið nánar

Veldu flipa. Smelltu á mynd til að stækka hana.

Önnur rásin í nærmynd. Hér má fylgja framrás og bakrás frá varmaskiptinum.

Myndirnar eru úr skjámyndaverkefni AndOr. Mæligildi eru auðkennd með striki.

Ertu með sambærilegt verkefni í huga?

Við hjálpum þér að finna lausn sem hentar þínum rekstri.