Um AndOr

AndOr ehf. er verkfræðistofa á Akureyri, stofnuð árið 2019. Við hönnum stjórnkerfi, gerum stýriteikningar, forritum Siemens iðntölvur og setjum upp skjámyndakerfi frá mySCADA. Viðskiptavinir okkar eru sveitarfélög, veitur og fyrirtæki um allt land.

Nafnið AndOr vísar í rökaðgerðirnar AND og OR, sem eru undirstaða allrar rökstýringar.

2019
Stofnað
mySCADA
Umboðsaðili á Íslandi
Allt landið
Þjónustusvæði

Hvernig við vinnum

Sama teymið alla leið

Sama teymið fylgir verkefninu frá hönnun til gangsetningar og samræmir hönnun, teikningar og forritun.

Hönnun með framkvæmdina í huga

Við hönnum út frá praktískri reynslu og hugum að uppsetningu og tengingum frá upphafi verks.

Þjónusta eftir afhendingu

Við prófum kerfið fyrir afhendingu og afhendum handbók notanda. Í rekstri veitum við þjónustu, hvort sem breyta þarf stillingum eða bæta við búnaði.

Starfsfólk

Stefán Karl Randversson

Rafmagnstæknifræðingur

Sævar Karl Randversson

Rafmagnsverkfræðingur

Marý Sæmundsdóttir

Skrifstofa
Meðal viðskiptavina og samstarfsaðila

Ræðum verkefnið þitt

Hafðu samband til að fá nánari upplýsingar eða tilboð í verkefnið.