Loftræsing og hússtjórn
Stýringar fyrir loftræsikerfi og hússtjórnunarkerfi.
Við hjá AndOr höfum margra ára reynslu af stjórnkerfum. Við notum Siemens iðntölvur og skjámyndakerfi frá mySCADA og sjáum um hönnun, stýriteikningar, forritun og gangsetningu.
Við hönnum stýringar fyrir byggingar, veitur og iðnað, og getum sameinað yfirsýn yfir mörg kerfi í einu skjámyndakerfi.
Stýringar fyrir loftræsikerfi og hússtjórnunarkerfi.
Stýring og vöktun fyrir dælustöðvar og veitukerfi.
Stýringar fyrir framleiðslu- og vinnslubúnað.
Stýring brunaloka, stöðuvöktun og sjálfvirkar prófanir.
Stýring á hita, hringrás og efnaskömmtun í sundlaugum og pottum.
Stýringar fyrir lýsingu, gólfhita og gardínur. Við notum KNX í hússtýringar og DALI í lýsingarstýringar.
Iðntölvan les mæligildi frá skynjurum og stýrir búnaðinum. Skjámyndakerfið sýnir stöðu kerfisins og gerir þér kleift að fylgjast með því og breyta stillingum.
VAFRI · SÍMI · STJÓRNSTÖÐ
Staða alls kerfisins á einum stað, uppfærð í rauntíma.
Viðvaranir og atburðaskráning þegar frávik koma upp.
Skráð mæligildi, ferilrit og skýrslugerð með myREPORTS.
Fylgstu með kerfinu í vafra á tölvu, síma eða spjaldtölvu um örugga fjartengingu.