Um kerfið
Útisvæði með litastýrðri lýsingu og snjóbræðslu þarf að vera einfalt í daglegri notkun. Á skjánum eru lýsingin, snjóbræðslan og heitavatnsnotkunin á einum stað.
- Litasenur
- 10
- DALI-línur
- 2
- Snjóbræðslukerfi
- 2
- Skjámyndakerfi
- mySCADA
Helstu atriði
- Handrið með RGBW-ljósum, pollar og kastarar á tveimur DALI-línum
- Tíu litasenur, eða frjáls litur úr litakorti með ljósstyrk og hvítblöndun
- Stýrivélin reiknar rauðan, grænan, bláan og hvítan fyrir ljósin
- Sólarklukka kveikir og slekkur ljósin
- Tvö snjóbræðslukerfi með varmaskipti, dælu og fallreglun
- Heitavatnsnotkun mæld á dag, mánuð og ár, og mánaðarskýrsla um notkun, kostnað, gangtíma og viðvaranir
Skoðaðu kerfið nánar
Veldu kerfi. Smelltu á mynd til að stækka hana.
Myndirnar eru sýnishorn teiknuð í skjástaðli AndOr, byggð á reynslu okkar af ljósastýringum og snjóbræðslu.


