Lausn úr fyrri verkum

Útsog í ökutækjasal

Blásarar fara í gang þegar hurð opnast og mengunarnemar vakta loftið.

Forsíðan sýnir salinn séðan ofan frá með hurðum, blásurum og mengunarnemum, og útsog, loftgæði, loftræsingu og stjórnskáp á einum stað. Sýnishorn teiknað í skjástaðli AndOr.

Um kerfið

Í ökutækjasal þarf að fjarlægja útblástur um leið og ökutæki eru ræst. Skjámyndakerfið sýnir hurðir, blásara, loftgæði, loftræsingu og stöðu stjórnskápsins.

Útsogsblásarar
3
Mengunarnemar
6
Mörk á hvern nema
4
Skjámyndakerfi
mySCADA

Helstu atriði

  • Útsog fer í gang þegar hurð opnast: spjaldlokur opna og blásari fer á fullan hraða
  • Eftir að hurðir lokast gengur blásarinn á minni hraða í stilltan tíma og stöðvast
  • Handhnappar í sal keyra alla blásara í nokkrar mínútur
  • CO₂- og NO-nemar með línuriti, og aðvörun áður en komið er að efri mörkum
  • Seinkun, hraði og tímar stillt á skjánum
  • Vöktun stjórnskáps: spenna, varrofar og 24 V greinavörn
  • Mánaðarskýrsla úr gagnasöfnun

Skoðaðu kerfið nánar

Veldu kerfi. Smelltu á mynd til að stækka hana.

Hver blásari með sínum hurðum: hraði, spjaldloka og hamur. Línuritið sýnir fullan hraða á meðan hurð er opin og minni hraða í stilltan tíma eftir að hurðir lokast. Stillingar og handkeyrsla eru á sömu mynd. Sýnishorn teiknað í skjástaðli AndOr.

Lausnin er úr fyrri verkum AndOr. Myndirnar eru teiknaðar upp í skjástaðli AndOr og gildin á þeim eru dæmi.

Búnaður fyrir sambærileg kerfi

Öll verkefni

Ertu með sambærilegt verkefni í huga?

Við hjálpum þér að finna lausn sem hentar þínum rekstri.