Lausn úr fyrri verkum

Sundlaug

Stýring á hringrás, hreinsun og hitun laugar og potts, ásamt loftræsingu salar.

Forsíðan sýnir laug, pott, loftræsingu og hitakerfi á einum stað, ásamt nýjustu viðvörunum. Sýnishorn teiknað í skjástaðli AndOr.

Um kerfið

Sundlaug þarf hreint og jafnheitt vatn allan daginn. Skjámyndakerfið sýnir laug, pott, loftræsingu og hitakerfi á einum stað, og stillingar eru gerðar á skjánum.

Laugarker
2
Kerfi á skjá
4
Iðntölva
Siemens
Skjámyndakerfi
mySCADA

Helstu atriði

  • Hringrás með jöfnunartanki, dælu, sandsíu og varmaskipti
  • Klór og pH mæld, með viðvörun ef gildi fer út fyrir mörk
  • Hiti laugar og potts stýrður með mótorlokum, og yfirhitavörn á potti
  • Sjálfvirk áfylling og bakskolun eftir vikuáætlun
  • Loftræsing salar þar sem hraði blásara fylgir raka
  • Línurit, viðvaranasaga og mánaðarskýrsla um vatnsgæði

Skoðaðu kerfið nánar

Veldu kerfi. Smelltu á mynd til að stækka hana.

Hringrás laugarinnar: jöfnunartankur, dæla, sandsía, varmaskiptir og mæling klórs og pH, ásamt vikuáætlun bakskolunar. Sýnishorn teiknað í skjástaðli AndOr.

Lausnin er úr fyrri verkum AndOr. Myndirnar eru teiknaðar upp í skjástaðli AndOr og gildin á þeim eru dæmi.

Búnaður fyrir sambærileg kerfi

Öll verkefni

Ertu með sambærilegt verkefni í huga?

Við hjálpum þér að finna lausn sem hentar þínum rekstri.