Um kerfið
Skóli með mörgum álmum þarf að stýra ljósum, gólfhita, snjóbræðslu og skólabjöllum án þess að húsvörður fari á milli skápa. Skjámyndakerfið sýnir allt á einni forsíðu og á grunnmynd hverrar álmu.
- Kerfi á skjá
- 4
- Ljósastýring
- KNX
- Iðntölva
- Siemens
- Skjámyndakerfi
- mySCADA
Helstu atriði
- Ljós á KNX, með birtu, kösturum og senum í hverri stofu
- Senur eins og Morgun, Þrif og Slökkva allt með einum smelli, og klukkustýring ræsir þær
- Stofa í handstýringu sést í gulu
- Gólfhiti með mótorloka og hitanema í hverju svæði, og viðvörun ef hiti fer út fyrir mörk
- Snjóbræðsla á stéttum og tröppum með dælu, regli og þrýstingsvöktun
- Skólabjöllur hringja eftir hringitímum, og hægt er að hringja handvirkt
- Vöktun stjórnskáps sýnir samskipti og 24 V spennu, svo bilun sést strax
Skoðaðu kerfið nánar
Veldu kerfi. Smelltu á mynd til að stækka hana.
Lausnin er úr fyrri verkum AndOr. Myndirnar eru teiknaðar upp í skjástaðli AndOr og gildin á þeim eru dæmi.


