Um kerfið
Dælustöð fráveitu þarf að halda vatnshæðinni í brunninum innan marka þótt rennslið breytist. Rekstraraðili sér brunninn, dælurnar og rennslið á einni mynd og fær viðvörun á skjáinn þegar eitthvað bregður út af.
- Dælustöðvar
- 2
- Dælur alls
- 7
- Iðntölva
- Siemens
- Skjámyndakerfi
- mySCADA
Helstu atriði
- Hæðarstýring bætir dælum við og stöðvar þær eftir vatnshæð
- Dælurnar skiptast á að vera aðaldæla og ganga á hraðabreyti
- Þrír hæðarnemar, og kerfið heldur áfram á tveimur ef einn bilar
- Þurrkeyrsluvörn stöðvar dælurnar ef hæðin fer of lágt
- Hæðarmörk, hraði og seinkun stillt á skjánum
- Línurit, rennsli á mánuði og ári og mánaðarskýrsla
- Sama grunnkerfi getur þjónað fleiri stöðvum, og dælu má bæta við án þess að breyta uppbyggingu
Skoðaðu kerfið nánar
Veldu kerfi. Smelltu á mynd til að stækka hana.
Myndirnar eru sýnishorn teiknuð í skjástaðli AndOr, byggð á reynslu okkar af dælustöðvum.


